Tuesday, January 3, 2012

Procrastination dauðans!!


Eins og þið sjáið er ég er að gera bókstaflega allt til þess að skrifa ekki ritgerðina sem ég á að vera að skrifa... meira að segja blogga!

Ég held að procrastination (vá hvað er gott íslenskt orð fyrir það? Frestunarárátta?) sé örugglega svona topp 3 vandamál nemenda í dag, ásamt athyglisbresti og of mikilli facebook/internet notkun. Vá þegar ég tel þetta allt upp sé ég að þetta á allt ógeðslega vel við mig.... fjandinn!

Samkvæmt Wikipedia er frestunarárátta (frekar sátt með þessa þýðingu) að skipta út verkefnum sem hafa mikið mikilvægi út fyrir verkefnum sem hafa lítið sem ekkert mikilvægi en eru samt skemmtilegri. Til dæmis að skrifa ekki ritgerð heldur bara að blogga...

Í gær ætlaði ég að klára ritgerðina, ég er sko komin með alveg 1/3 og ætlaði bara að slumpa þessu af... en í staðinn fór ég til tannlæknis, taldi ógeðslega mikið af flöskum og fór með í Sorpu (bráðnauðsynlegt auðvitað) og fór svo í ræktina en það er reyndar alltaf priority, svo ótrúlega gott að fara í ræktina og taka virkilega vel á því eftir allann viðbjóðinn sem maður er búinn að láta ofan í sig yfir jólin.

Ég er algjört ræktarfrík og hef eiginlega alltaf verið rosalega mikið að hreyfa mig síðan ég man, enda með maraþon hlaupara sem foreldra, smá vandræðalegt að vera svarti sauðurinn í fjölskyldunni. Ég hleyp mjög mikið og hreyfi mig yfirleitt svona 6 sinnum í viku plús náttúrulega rosalega mikið af hreyfingu í skólanum en þar erum við í stage combat (skylmingar og fl), fimleikum, yoga og svo að sjálfsögðu teygjum við mjög mikið og þurfum alltaf að hita upp allaveganna svona 30 mín áður en hver dagur byrjar. En fyrir mér er það bara snilld, elska að fara að sofa með þreytu í líkamanum og vita að ég er búin að taka á því fyrir daginn.

Mér finnst hinsvegar eitt vera óþolandi við ræktina í Englandi er hvað það eru engar og þá meina ég ENGAR stelpur að taka í lóðin!! Hérna á Íslandi er þetta allt önnur saga jafnvel þótt við séum að verða feitasta þjóð í heimi (ekki alveg að kaupa það en ok) þá eru flestar stelpur sem fara í ræktina að taka almennilega á því. Stelpum í Englandi finnst það að lyfta lóðum bara fáránlegt, því þá verður maður svo sjúklega bulky og massaður bara en to tre og þá er bara ekki séns að verða eins mjó og þær vilja vera. OHHH! Common! Maður verður ekki massaður af því að lyfta og meira að segja af því að lyfta ógeðslega þungt, maður verður miklu grennri og sterkari.



Ég er hægt og rólega að breiða út boðskapinn þarna úti, stelpurnar í bekknum eru alltaf að spurja hvað ég geri í ræktinni og hvernig ég borða og hvort ég væri til í að gera plan fyrir þær o.s.frv. Ég held bara að málið sé að stelpur kunna bara ekki að lyfta og eiga erfitt með að fara og biðja um aðstoð. Ég skil það fullkomlega, ég var mjög svipuð fyrir nokkrum árum, var alltaf að mæta í ræktina og var ekki alveg viss hvað ég ætti að vera að gera og hvernig ég ætti að lyfta svo ég sleppti því alltaf bara. Þangað til að ég fór í fjarþjálfun rétt áður en ég fór út. Það var vægast sagt besta ákvörðun ever!! Ég fór til hennar Katrínar Evu hjá Betriárangri en hún náttúrúlega orðin stjörnuþjálfi íslands núna, þeim gengur ekkert smá vel enda örugglega bestu þjálfarar landsins. Hún kenndi mér hvernig maður á að lyfta almennilega og haga matarræðinu og skipuleggja sig vel. Ég hef viðhaldið því síðan þá og ég elska að mæta í ræktina og vita alltaf hvað ég er að fara að gera, ég er farin að þekkja eigin líkama það vel að ég geri mín plön öll sjálf. Held það sé mjög mikilvægt að fara til þjálfara og gera þetta rétt og almennilega til að það verði lífstílsbreyting hjá manni. Það er líka algjört möst að hafa stuðning og sem betur fer er kærastinn minn álíka mikið líkamsræktarfrík. Við höfum líka einnig verið að prófa okkur áfram í Paleo mat en það er eitthvað sem ég er að fara ansi hægt í þar sem ég elska mjólk og ost og langar ekkert svakalega að kötta það út. Hendi örugglega inn nokkrum uppskrifum og svoleiðis bráðum.

Okei lengsta blogg ever... hefði ég bara skrifað ritgerðina í staðinn fyrir þetta væri ég komin með ótrúlega mikið af efni! Dem!

Þangað til seinna!

Siddý

1 comment:

  1. Flott blogg...og gangi þér vel með ritgerðina þína - hún klárast á endanum þrátt fyrir freklega frestunaráráttu :)
    kv.
    Anna Þóra

    ReplyDelete