Og rútína hefst á ný!!
Byrjaði aftur í skólanum í gær eftir að hafa KLÁRAÐ HELVÍTIS RITGERÐINA! Reyndar var það ekkert svo erfitt þar sem ég hafði alltaf skrifað smá og smá í gegnum allt jólafríið þannig að á Sunnudaginn þurfti ég bara að skrifa smá og laga síðan orðafar og vitnanir og svoleiðis... Reyndar var þetta mögulega lélegasta ritgerð sem ég hef skrifað, voðalega lítið inspiring eða sniðug en svona er þetta. Ég segi við sjálfa mig eftir hverja einustu ritgerð að ég ætli að vera súper undirbúin næst og byrja að skrifa hana ótrúlega snemma og bla bla bla... Gerist aldrei.
En í gær byrjuðum við á því að ræða leikritið sem við erum að fara að gera og leikstjórinn sagði okkur semsagt frá því hvernig hann var búinn að ímynda sér að við settum upp leikritið. Þetta leikrit er nefnilega pólitísk Satíra og hann sem sagt vill að við verðum mjög Grotesque, eða alveg fáránlega ýkt og óraunveruleg en samt eitthvað "sannleikskorn" í karakterunum. Hann líkti þeim við svona skrípamynd af stjórnmálamönnum í dagblöðum; alveg fáránlegar en samt er eitthvað satt til í þeim. Hann ætlaði einnig að gera leikritið "nútímalegra" með því að draga innblástur úr þáttum eins og "The Only Way is Essex" og "Desperate Scousewives" sem eru alveg súrustu raunveruleikaþættir Bretlands með svona alveg ekta glamúr bimbó breskum gellum sem við höfum alveg örugglega öll séð í fríi á Spáni.
Þetta verður bara snilld, gaman að vera að vinna að verkefni þar sem maður er bókstaflega bara að fíflast og leika sér!
Við verðum í skólanum frá 9:30 til 18:00 alla daga og svo fyrir utan það er mikil karaktervinna og research og svoleiðis, svo ég ætla að vakna með Steina þegar hann vaknar til að fara í vinnuna á hverjum morgni klukkan 6:30 og fara í ræktina áður en ég þarf að mæta í skólann. Ég er reyndar ekki vön því að fara í ræktina á morgnanna og á örugglega eftir að þurfa að venjast því, en það er svo notalegt að vera búinn kl sex í skólanum og geta bara farið beint heim. Mission Janúarmánaðar verður Leggir og Rass og mikið af hoppum og HIIT þjálfun og ég er bókstaflega aum allstaðar eftir æfinguna í gær... elska þessa tilfinningu!
Svo er ég líka að gera smá veðmál við sjálfa mig um að teygja líkamann á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. Ástæðan er sú að ég get verið mjög slæm í bakinu og þó svo að ég teygi mikið á í skólanum þá held ég að ég spennist samt allt of mikið upp. Þannig að ég ætla að prófa að teygja á, á hverju kvöldi í 2 vikur og sjá hvernig mér líður! Læt ykkur vita hvernig það gengur.
Annars fór ég að pæla í svolitlu um daginn sem mig langaði að blogga um, en það er hvað fólk er orðið fælið einhvernveginn. Til dæmis ef að ég myndi fara að einhverri manneskju sem mér fyndist áhugaverð, eða vera að gera ótrúlega flotta hluti eða ég held að mér myndi semja mjög vel með og heilsa uppá eða hrósa eða vingast við á einhvern hátt, þá myndi viðkomandi manneskja bara halda að ég væri eitthvað skrýtin! Þetta er svo mikil synd!!!! Afhverju er það ekki bara algjör snilld ef einhver hrósar manni, eða vill vingast við mann eða spjalla um eitthvað sameiginlegt þótt þið þekkist lítið eða ekkert? Ég held að fólk og þá sérstaklega íslendingar einangri sig svolítið og þar af leiðandi finnist þetta bara alveg út í hött, en ég segi að við ættum að hætta þessu. Byrja að spjalla meira við alla, vera opin fyrir hrósi eða nýrri vináttu, hrósa öðrum og hætta að vera svona tortryggin, það væri svo miklu skemmtilegra!
En ég hef þetta ekki mikið lengra. Ég ætla að koma með blogg í þessari viku um topp 10 staði sem mig langar að ferðast til og afhverju :) Fylgist með!
Eigiði góðan dag!
Siddý




No comments:
Post a Comment