Eins nálægt því að vera heiladauð og ég kemst eiginlega, sem er samt undarlega skemmtilegt og frelsandi.
Ég er semsagt að leika með mjög sterkum Cockney hreim (sem er London hreimur) og er með mjög lítið raddsvið þannig að oft hljóma ég bara eins og eitthvað working class robot, það er alveg frekar fyndið.
Annars er voða lítið að frétta. Ég er búin að vera að fara í ræktina á hverjum morgni áður en ég mæti í skólann og það er algjör snilld, ég er virkilega að elska það. Ég er samt þannig að ég get ekki farið í ræktina án þess að borða neitt því mér verður svo óglatt, en oft næ ég ekki að vakna svo snemma til þess að borða hafragraut og melta smá og fara svo í ræktina, þannig að í morgun fékk ég mér bara 3 eggjahvítur í hrærðum örbylgjueggjum* og svo Amino Energy. Það var allgjör snilld, ég varð ekki ótrúlega södd af því en mér leið samt eins og ég hefði aðeins meiri orku. Svo fékk ég mér sludge* sem er prótein sull sem Steini fann uppá og er ógeðslega gott. Klárlega mæli með því að prófa þetta fyrir þá sem langar að fara að mæta í ræktina á morgnanna en meika ekki að fara á fastandi/svangann maga.
Annars pöntuðum við Steini far til Svíþjóðar til tengdó yfir reading week hjá mér. Förum reyndar frá Stansted sem er langt langt í burtu frá okkur og flugið okkar er kl 8:45 um morguninn. Svo við ákváðum bara að fara uppá flugvöll seint um kvöldið 14.feb og vera yfir nóttina. Síðan vill svo skemmtilega til að þetta er valentínusardagur svo við höfum það bara ótrúlega rómó í flugstöðinni. Við verðum svo í Eskilstuna hjá Láru og Sæma fram á helgi og förum svo niður til Lundar að hitta bróður hans Steina og kærustu hans. Síðan ákváðum við að vera mega flipparar og panta okkur flug bara frá Köben heim til London svo seinasta daginn ætlum við bara að rölta um á strikinu og hafa það kósý.
Annars ætla ég að fara að drífa mig í bíó. Ég er að heyra alveg ótrúlega góða hluti um Shame og War Horse. Shame á víst að vera bara mindblowing góð, svo ég er orðin mjög spennt fyrir henni. Síðan langar mig líka að fara að sjá Iron Lady þannig að maður er að fara að eyða alveg fullt af pening í bíó á næstunni. Ojæja það er hægt að verja peningunum í verri hluti.
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Hérna koma þessar "uppskriftir":
*Eggjahvítuhrærur
- Brýtur 3 egg í skál og nærð rauðunum úr - mér finnst stundum gott að láta eitt egg og svo bara hvítur.
- Blandar smá mjólk útí, helst fjörmjólk eða léttmjólk.
- Smá saltklípa
- Þeyta síðan allt saman í skálinni með gaffli.
- Henda skálinni svo inní örbylgjuofn í 30 sek.
- Taka skálina út og hræra í henni.
- Setja skálina aftur inn í 30 sek og taka út og hræra. Endurtaka þangað til að eggin eru orðin þykk en smá blaut.
Svona verða eggin ótrúlega næs og blaut!
*Steina sludge:
- 1dl af höfrum.
- Skeið af próteini - helst með karamellubragði eða súkkulaði.
- Hnetusmjörsklípa u.þ.b ein teskeið eða meira eftir smekk.
-Mjólkursletta.
-Hræra saman þangað til að þetta verður að svona "drullu".
Ótrúlega næs, verður samt alveg fáránlega addictive.
Ást og friður
Siddý



No comments:
Post a Comment