En í þetta skipti verður það öðruvísi! :D
Ég er semsagt 21árs leiklistarnemi í London, á öðru árinu mínu við Rose Bruford College þar sem ég er að læra BA Acting. Ég bý í algjörri skítaíbúð sem er alltaf kalt í með kærastanum mínum og 2 öðrum stelpum sem eru í sama skóla og ég, en það er bara partur af programmet!
Ég hafði hugsað mér að blogga bara um allt sem vekur áhuga minn, frá því hvað ég er að gera í skólanum yfir í kvikmyndir, ferðalög, líkamsrækt, bækur og bara you name it...
Núna svona þar sem það er 1.janúar 2012 og þá eru allir að setja sér áramótamarkmið fyrir nýja árið (þoli ekki að segja áramótaheit, finnst það eitthvað svo ugh) og þar á meðal ég. Mín markmið árið 2012 verða meðal annars:
Lesa fleiri bækur!
Markmið sem ég er alltaf að setja mér en einhvernveginn næ aldrei að halda við, það breytist nú!
Fara að sjá fleiri leiksýningar og almennt vera menningarlegri.
Persónulega finnst mér þetta markmið smá "wanky" en engu að síður nauðsynlegt held ég.
Ferðast eitthvað ótrúlega skemmtilegt!
Langar svo að ferðast til margra mismunandi landa á árinu en buddan verður að setja línuna hvert og hvenær verður farið.
Blogga!
Skipuleggja tímann minn betur.
A.k.a hætta að eyða ógeðslega miklum tíma í facebook og eitthvað kjaftæði og gera eitthvað frambærilegra!
Held að ég hafi þetta ekki mikið lengra í bili, skrifa örugglega annað blogg mjög bráðlega. Ég flýg aftur út til London á föstudaginn næsta og svo Mánudaginn 9.jan byrja ég að æfa leikritið The Government Inspector eftir Nikolai Gogol þar sem ég er að fara að leika Maryu, það verður örugglega algjör snilld!
Njótið þynnkunnar og gleðilegt nýtt ár!!!


Like á þetta! Nú er ég búin að setja þig inn í Reader-inn minn þannig að þú verður að blogga reglulega ;)
ReplyDeleteHae elska. Gaman ad sja blogg, mun fylgjast med ther. Ein hugmynd sem eg fekk vid lesturinn sem sameinad verkefnid a naestu onn og eitt aramotamarkmidanna. Lesa 'An Actor Prepares' - Stanislavski. Hann talar um Governmen Inspector, reyndar bara i einum kafla eitthva sma en samt... Bokin er god :) Jaeja, fag-idiot kommenti lokid! Kv. Hreindis
ReplyDelete